Þriðji leikur Stjörnunnar og Val fór fram í Vodafonehöllinni 21. apríl sl. Sólveig Lára var fjarri góðu gamni og eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum var fremur lítill vonarneisti í hjörtum leikmanna og áhangenda, enda byrjaði leikurinn skelfilega. Stjarnan náði t.a.m. ekki að skora mark fyrr en á elleftu mínútu og þá var staðan orðin 6-1 og augljóst í hvað stefndi. Stjörnunni gekk afar illa að stöðva fyrrum leikmann Stjörnunnar Þorgerði Önnu sem raðaði 9 mörkum í netið í fyrri hálfleiknum. Hriplekri vörn fylgdi lítil markvarsla og engin hraðaupphlaup litu dagsins ljós á þeim tíma. Staðan í hálfleik 19-6 og formsatriði að klára leikinn.
Í seinni hálfleik róaði Stjarnan óknarleik sinn og gekk betur að koma tuðrunni í net andstæðinga sinna en varnarleikurinn var enn fremur máttlítill. Liðið náði þó að halda sjó nokkurnvegin í hálfleiknum með tiltölulega fáum tæknifeilum og öguðum sóknarleik en úrslitin voru ráðin eins og áður sagði. Lokatölur 39-23.
Skotnýting Stjörnunnar var 41% og sóknarnýting 34 %.
Markaskorarar: Jóna 10, Ali 3, Esther2, Hanna 2, Sandra 2, Helena 1, Hildur 1, Rut 1 og Arna 1 mark.
Helga varði 7 skot og þar af fóru 2 aftur til mótherja. Kristín varði 1 skot sem fór til baka.
Þetta var því síðasti leikur liðsins þetta keppnistímabil. Tímabils sem verður kannski helst minnst fyrir það að liðið var hársbreidd frá því að draga sig úr mótinu fyrst í haust. Árangur liðsins var 4. sæti í deildarkeppnini, töpuðu í 4-liða úrslitum gegn Val í Bikarkeppninni og urðu í 3-4 sæti á Íslandsmótinu í úrslitakeppninni. Liðið markaði eiginlega ekkert gegn sterkari liðinum, hélt jöfnu gegn HK en vann liðin fyrir neðan nokkuð örugglega. Vonandi verður næsti vetur betri og uppskeran ríkulegri en til þess að svo megi verða þarf ýmislegt að breytast til batnaðar....en við horfum auðvitað bjartsýn fram á veg og stefnum upp á við. Ég þakka þeim sem nennt hafa að lesa greinarnar mínar í ár og undanfarin misseri. Með kveðju Anna Þóra





















