|
skrifaði Anna Þóra
|
|
laugardagur, 06 mars 2010 |
|
Stjörnustelpur fengu HK stúlkur í heimsókn í Mýrina í dag. Fyrirfram lofaði leikurinn ekki mikilli spennu enda skilja mörg stig liðin að. Þórhildur lék ekki með vegna meiðsla og Ali er enn á batavegi og spilar bara vörn.
HK skoraði þó fyrsta markið í leiknum og leiddi þar til í stöðunni 3-3 en þá smellti Stjarnan í lás í vörninni og hélt hreinu í 10 mínútur. Á þeim tíma lék liðið einnig ágætan sóknarleik svo staðan um miðjan hálfleik var 8-3. HK náði aðeins að klóra í bakkann einkum vegna fjölmargra tæknifeila sem Stjarnan gerði á seinustu tíu mínútunum og þegar gengið var til leikhlés var staðan 11-7. Stjarnan byrjaði seinni hálfleikinn prýðilega og eftir 4 mínútur var staðan 15-7. Næstu tíu mínútur kom síðan versti kafli liðsins þar sem ekkert gekk í sókninni og vörnin var einnig fremur slök. HK náði á þeim kafla að minnka muninn í tvö mörk 16-14. Þá setti Stjörnuliðið aftur í gírinn og jók muninn jafnt og þétt þar til að hann var orðinn níu mörk. Lokastaðan 27-18 í fremur bragðdaufum leik. Skotnýting liðsins var að þessu sinni 57% og sóknarnýting 48%. Lísa var langmarkahæst í dag og var sérlega örugg í öllum sínum aðgerðum. Harpa átti fínan leik í vörninni og var með góða skotnýtingu. Togga setti nokkur flott mörk að venju en var á stundum óheppin með skotin sín. Heiða átti prýðilegan leik á báðum vallarhelmingum og Jóna átti fína spretti í vinstra horninu. Esther lék aðallega í sókninni og hefur oft átt betri dag. Ali lék nánast bara í vörn og gerði það vel. Guðrúnarnar, Erla og Hrefna komu báðar lítlillega við sögu og stóðu sig ágætlega. Indíana kom aðeins inn á náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Flora stóð nánast allan tímann í markinu og varði mjög vel. Markaskorar Stjörnunnar: Lísa 9 (6v), Harpa 5, Togga 4, Heiða 4, Jóna 3, Esther 1 og Ali 1 (1v) mark. (Fengin víti: Jóna 2, Harpa 1, Ali 1, Togga 1, Heiða 1, Lísa 1 og Guðrún Hrefna 1) Flora varði 22 skot í markinu og fóru 5 skot aftur til mótherja. Markaskorar HK: Lilja 5 (4v), Elín Anna 4 (1v) , Elísa 3, Elfa 3, Valgerður 2 og Heiðrún 1 mark. Ólöf markvörður HK varði 15 skot í marki HK. |
|
|
skrifaði Anna Þóra
|
|
miðvikudagur, 03 mars 2010 |
|
Stjarnan hélt enn eina ferðina í Hafnarfjörðinn, að þessu sinni í Kaplakrika til að leika gegn FH dömum. Þegar liðin áttust við seinast sigraði Stjarnan örugglega. Þórhildur var fjarri góðu gamni í kvöld vegna meiðsla og Ali er smá saman að jafna sig af bakmeiðslunum en tekur þó ekki enn alveg þátt í sóknarleiknum. FH byrjaði betur í leiknum og skoraði tvö fyrstu mörkin. Það var ekki fyrr en á 5. mínútu sem fyrsta Stjörnumarkið leit dagsins ljós en þá komu þau í sjö í röð án þess að FH næði að svara fyrir sig. Staðan eftir 11 mínútna leik 2-7. eins og þessar tölur með sér var vörnin velmeð á nótunum og ef ekki hefði komið til góð markvarsla Kristinu (og stanganna) í marki FH hefði munurinn verið enn meiri. Staðan eftir tuttugu mínútur var 4-10 og í þeirri stöðu misnotaði Stjarnan víti og virtist koma eitthvert fát á þær við það og FH skoraði fjögur mörk í röð og skyndilega var hlaupin smá spenna í leikinn. Stjarnan náði aðeins að lagfæra stöðuna fyrir leikhlé eða í 10-13. Stjörnustelpur mættu galvaskar á völlinn í seinni hálfleik og höfðu fljótlega náð góðri forystu. Eftir tíu mínútna leik var staðan orðin 12-19 og ljóst í hvað stefndi. Það sem eftir lifði hálfleiksins skipti Atli varamannabekknum meira inn á og fengu flestir leikmenn að spreyta sig í kvöld og stóðu sig vel. Eftir tuttugu mínútna leik var munurinn átta mörk 15-23 og þegar flautað var til leiksloka skildu níu mörk liðin að, þrátt fyrir að fyrsta mark Örnu fyrir meistarflokk (sem hún skoraði í seinustu sókninni) hefði af óskiljanlegum ástæðum verið dæmt af. Lokatölur urðu 18-27 og var sigurinn síst of stór því Stjarnan misnotaði umul góðra færa auk tveggja vítakasta. Skotnýting liðsins var 52% og sóknarnýting 42%. Lísa var markahæst í kvöld og nýtti nokkuð vel þau fjölmörgu færi sem hún fékk á línunni auk þess að vera vel á verði í vörninni. Jóna var í banastuði í vinstra horninu og klikkaði ekki á skoti í kvöld. Togga lék ljómandi vel að þessu sinni, skoraði góð mörk og átti fjölda sendinga á línu og í vinstra hornið. Esther átti flottan fyrri hálfleik, var örugg í aðgerðum sínum og skoraði góð mörk. Harpa átti fínan leik í vörninni en hefur oft hitt markið betur en í þessum leik. Heiða átti líkt og Harpa mjög góðan dag varnarlega en hafði sig minna frammi sóknarlega. Ali spilaði nánast bara vörn og gerði það mjög vel. Indíana átti ágæta innkomu og það átti Guðrún Erla líka þó hún hefði ekki verið í miklu uppáhaldi hjá dómurum leiksins. Fanney náði ekki að setja mark í leiknum þrátt fyrir tvö ágæt færi og Arna sem kom inn á lok leiksins fékk sitt mark dæmt af. Flora átti mjög góðan leik í markinu og vann vel með vörninni. Markaskorarar Stjörnunnar: Lísa 8, Jóna 6, Togga 4, Esther 3, Harpa 2, Heiða 1, Indíana1, Guðrún Erla 1, og Ali 1 (1v) mark. (Fengin víti :Lísa 2 og Jóna 1) Flora varði 23 skotí markinu og þar af fóru 7 aftur til mótherja. Markaskorar FH: Heiðdís 4, Ingibjörg 4, Arnheiður 4, Berglind 4, Sigrún 3, Agnes 2 og Berglind 1 mark. Kristína í marki Fh varði 14 skot og þar af fór 1 aftur til mótherja. |
|
|
8 mörk hjá Hörpu og 8 marka sigur |
|
skrifaði Anna Þóra
|
|
laugardagur, 20 febrúar 2010 |
|
Stjarnan mætti Fylki í dag í Mýrinni. Báðar viðureignir liðanna í vetur höfðu endað með nokkuð öruggum sigri Stjörnunnar. Þegar gengið var til leiks í dag gat þó brugðið til beggja vona þar sem Ali er enn slæm í baki og gat bara leikið í vörn og Togga er ennþá að glíma við handarmeiðslin svo ekki var víst fyrirfram hve mikið hún gæti tekið þátt í dag. Leikurinn byrjaði á fremur rólegum nótum og var nokkuð um tæknifeila hjá báðum liðum á upphafsmínútunum. Fylkir skoraði fyrsta markið eftir tveggja mínútna leik en þá kom prýðilegur kafli hjá Stjörnunni sem lék góða vörn og skoraði ein fimm mörk í röð í sókninni. Það var ekki fyrr en á tólftu mínútu sem Fylkir náði að skora annað markið sitt en þá komu þau líka fimm í röð án þess að Stjarnan næði að svara fyrir og staðan var því 5-6 um miðjan hálfleik. Þá skellti Stjarnan í lás í vörninni og náði aftur góðri forystu og þegar gengið var til hálfleiks var staðan 11-7 heimaliðinu í vil. Stjarnan hélt sama dampi í upphafi seinni hálfleiks. Vörnin var örugg með Floru vel á verði fyrir aftan og sóknarleikurinn var skynsamlegur og árangusríkur. Þegar fimmtán mínútur voru liðnar var staðan orðin 21-9 Stjörnunni í vil og bara formsatriði að klára leikinn. Það var því hægt að skipta inn á af varamannbekknum og fengu allir leikmenn að spila í dag og allir lögðu sitt af mörkum. Fylki náði að laga stöðuna aðeins fyrir leikslok en sigurinn var aldrei í hættu og hefði alveg getað verið stærri ef öll dauðafærin sem fengust hefðu verið nýtt beturJ Lokatölur urðu 24-16. Skotnýting liðsins var 58% og sóknarnýting 41%. Harpa var markahæst í dag og lék hreint prýðilega bæði í vörn og sókn. Lísa var örugg, bæði á línunni og vítalínunni í dag og skoraði grimmt. Esther átti góðan leik í dag fyrir utan að klúðra algjörum dauðafærum í lok leiksins. Guðrún Erla átti stórskemmtilega innkomu í leiknum og setti þrjú gullfalleg mörk í dag. Heiða kom inn á um miðjan fyrri hálfleik og lék feykivel í vörninni og var örugg í flestum sínum aðgerðum. Togga byrjaði leikinn en fór út af um miðjan hálfleik og hvíldi það sem eftir var. Þórhildur spilaði eiginlega bara í fyrri hálfleik þar sem smámeiðsli tóku sig upp en hún stóð sig vel að venju þann tíma. Ali lék bara í vörn í dag og fékk meira að segja að hvíla alveg seinni hluta seinni hálfleiks. Hún stóð sig vel varnarlega þrátt fyrir verki í bakinu. Jóna var afar óheppin með skotin sín í dag en hún var aftur á móti mjög lunkin að koma sér í góð færi. Indíana kom inn á í sókninni og átti nokkur skot sem rötuðu því miður ekki í markið að þessu sinni. Sigrún María og Fanney komu inn á í lok leiksins en náðu ekki að setja mark sitt á hann að þessu sinni. Flora hafði ekki mikið að gera í markinu í fyrri hálfelik en kom með aðeins fleiri vörslur í þeim seinni. Sólveig fékk seinustu 6 mínúturnar í markinu og stóð sig vel. Markaskorar Stjörnunnar: Harpa 8, Lísa 6 (4v), Esther 4, Guðún Erla 3, Togga 1, Þórhildur 1 og Heiða 1 mark. ( Fengin víti: Esther 2, Harpa 1 og Þórhildur 1 víti) Flora varði 11 skot í markinu og Sólveig 5 en þar af fóru 3 aftur til mótherja. Markaskorar Fylkis: Sunna J: 5, Elzbieta 5(3v), Sunna María 4, Sigríður 1 og Lilja 1 mark. Guðrún markvörður Fylkis átti bestan leik Fylkisstúlkna í kvöld og varði 18 skot og þar af fóru 4 aftur til mótherja. |
|
|
skrifaði Anna Þóra
|
|
fimmtudagur, 18 febrúar 2010 |
|
Haukar voru fyrstu andstæðingar Stjörnunnar í þriðju umferðinni og var þetta í þriðja sinn sem liðin mættust á tæpum mánuði. Leikið var í Hafnarfirði og var ekki víst hvort Ali yrði með í leiknum þar sem hún hefur verið að glíma við bakmeiðsli en hún ákvað á seinustu stundu að spila og leggja sitt af mörkum í varnarleiknum en hvíldi nánast alveg í sókn. Jafnræði var með liðunum til að byrja með og jafnt á flestum tölum þar til um tæpan miðjan hálfleik en þá var staðan 5-5 þrátt fyrir að Stjarnan væri búin að misnota víti og láta verja töluvert frá sér. Þá kom slæmur kafli hjá Stjörnustúlkum og Haukar skoruðu 3 mörk í röð. Stjarnan tók aðeins við sér og náði að setja nokkur mörk inn í markið en þá komu sóknarfeilar í kippu og Haukar skoruðu 4 hraðaupphalupsmörk í röð. Þegar gengið var til hálfleiks var staðan frekar döpur eða 15-10 Haukum í vil. Í seinni hálfleik byrjaði Stjarnan mun betur varnarlega en sóknin gekk eftir sem áður ekki alveg sem skyldi. Munurinn var þó orðinn 4 mörk eftir átta mínútna leik 17-13. Þá kom sérlega slæmur kafli hjá Stjörnunni og eftir 20 mínútna leik var staðan orðin ískyggileg eða 24-15. Það var ekki fyrr en seinustu 10 mínútur leiksins sem liðið spilaði eðlilegan leik og vannst sá kafli 7-2. Þannig að þegar flautað var til leiksloka varð tapið ekki nema fjögur mörk 26-22. Skotnýting liðsins var skelfileg í dag eða einungis 42% og engu líkara en leikmenn væru í Brennó við markverði Hauka frekar en að þeir væru að reyna að koma boltanum framhjá þeim. Sóknarnýting var heldur ekki til að hrópa húrra fyrir eða 34%. Harpa var markahæst Stjörnustúlkna í leiknum en skotnýtingin hefði alveg mátt vera betri. Hún spilaði aftur á móti góða vörn allan tímann. Togga byrjaði leikinn mjög vel en meiddist svo aðeins og náði sér ekki á strik eftir það. Þórhildur var að spila í hægra horni og hægri skyttu fyrri hluta leiksins og það hentaði henni ekkert sérlega vel en hún vann vel fyrir liðið þegar hún smellti sér á línuna seinni part seinni hálfleiks. Esther átti lélegan fyrri hálfleik en lék svo ágætlega í þeim seinni. Jóna nýtti þau fáu færi sem hún fékk ágætlega og það gerði Heiða í hægra horninu einnig. Ali lék aðallega í vörn en náði að smella einu inn í hraðaupphlaupi. Það fór lítið fyrir Lísu á línunni og rötuðu afar fár sendingar inn á hana í leiknum. Indíana kom lítilega við sögu í fyrri hálfleik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Flora átti frekar rólegan fyrri hálfleik en kom svo með góðar vörslur í þeim seinni. Sólveig kom inn á í tveimur vítum og varði annað þeirra glæsilega. Markaskorar Stjörnunnar: Harpa 7 (1v), Togga 4 (1v), Þórhildur 3 (2v), Esther 3, Heiða 2, Jóna 2 og Ali 1 mark. (Fengin víti: Jóna 2, Harpa 1, Lísa 1, Þórhildur 1 og Esther 1 víti). Flora varði19 skot í markinu og þar af fóru 8 aftur til mótherja. Sólveig varði 1 víti. Markaskorar Hauka : Hanna 9 (3v), Ramune 5, Nína 4, Ester 4 og Erna 4 mörk. Markverðir Hauka vörðu 30 bolta og fóru 7 af þeim aftur til mótherja. |
|
|
skrifaði Anna Þóra
|
|
sunnudagur, 14 febrúar 2010 |
|
Það er með miklum trega sem ég sest niður til að skrifa þessa færslu og þar sem ég hef ekki komist í tölvuna fyrr en nú – og langt liðið á kvöld, þá verður hún í styttra lagi að þessu sinni. Stjarnan mætti ákveðin til leiks í Vodafonehöllinni í dag og það var greinilegt að Stjörnustelpurnar ætluðu ekki að gefa neitt eftir. Vörnin var ágæt til að byrja með og Flora í miklu stuði á milli stangana. Jafn var eftir 10 mínutur 3-3 en Stjarnan náði góðri forystu um miðjan hálfleik 3-6 en Valur náði að minnka muninn á seinustu mínútunum og því leiddi Stjarnan bara með einu marki í hálfleik 9-10. Flora hafði farið hamförum í markinu og varið 11 skot og þar af fór 1 aftur til mótherja. Skotnýtingi hafði einnig verið ágæt en tæknifeilar aftur á móti fjölmargir. Í seinni hálfleik breytti Valur um varnarleik - bakkaði í 6-0 og virtist það setja Stjörnuna aðeins út af laginu þar sem þær klúðruðu 3 fyrstu sóknum sínum illa. Valur gekk á lagið og náði forýstunni í fyrsta skiptið í leikum 11-10. Stjarnan jafnaði og skiptust liðin á mörkum undir miðjan hálfleik en þá var staðan 17-17. Valur kemst yfir en Stjarnan jafnar og kemst yfir og fær tækifæri til að komast 2 mörkum yfir í þrígang en misnotar þau í öll skiptin. Á 7 mínútna kafla upp úr tuttugustu mínútu tapast leikurinn svo að segja þegar Stjarnan nær ekki að skora mark en Valur setur þrjú. Staðan eftir 27 mínútna leik 21-19 Val í hag. En markaskorið tók mikinn kipp þessar þrjár mínútur sem eftir voru og þegar upp var staðið hafði Valur skoraði 23 mörk gegn 22 mörkum Stjörnunnar. Skotnýting liðsins 53% og sóknarnýting 40% - ekkert spes tölur en auðvitað má segja að spennustig og mikilvægi leiksins eyðileggi svolítið statistikkina. Það hefði verið afar ljúft að fara í höllina 3ja árið í röð en nú er bara að bretta upp ermarnar og einbeita sér að Íslandsmótinu og klára það með stæl. Ali var markahæst Stjörnustelpna í dag en flest mörk hennar voru þó úr vítum. Harpa kom með nokkur flott mörk úr skotum af gólfi en nýtingin hefði alveg mátt vera aðeins betri. Sömu sögu er raunar hægt að segja um Toggu sem náði ekki að fylgja eftir ágætri byrjun í leiknum. Þórhildur var spræk í fyrri hálfleik en týndist svolítið í seinni hálfleik. Lísa nýtti vel þau færi sem hún fékk á línunni en þau voru ekki mörg í dag – því miður. Jóna fékk nokkur góð tækifæri til að skora úr hraðaupphlaupum en nýtti þau ekki alveg nægilega vel. Heiða kom með stutta en góða innkomu í fyrri hálfleik en fékk svo ekki tækifæri í þeim seinni. Esther kom inn á í vinstra hornið seint í seinni hálfleik en náði ekki að setja mark sitt á leikninn á neinn hátt. Flora stóð í markinu allan tímann og var án nokkurs vafa besti leikmaður liðsins í dag. Hún varði m.a. 4 víti í leiknum og fjölmörg dauðafæri. Markaskorar Stjörnunnar : Ali 8 (5v), Harpa 5, Togga 3, Lísa 2, Þórhildur 2, Heiða 1 og Jóna 1 mark. ( Fengið víti: Lísa 3, Harpa 2 og Jóna 1) Flora varði 21 skot í markinu og þar af fóru 5 aftur til mótherja. Markaskorar Vals: Hrafnhildur 7 ( 1v), Íris 5, Ágústa 4, Hildigunnur 3, Anna Ú 2 Rebekka 1 og Katrín 1 mark. Berglind varði ágætlega í seinni hálfleik hjá Val eða samtals 13 skot þar sem Valur vann boltann. |
|
|
skrifaði Harpa Sif
|
|
fimmtudagur, 11 febrúar 2010 |
|
Jæja styttist í sunnudaginn mikla! :) Takið frá 14. feb kl 16.00 og mætið í Vodafonehöllina :) |
|
|
File Not Found
The requested URL was not found on this server.